Efling menntunar
í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi
Um verkefnið
Matvælaframleiðsla hefur um árabil verið ein af undirstöðu atvinnugreinum Vestlendinga. Ferðaþjónusta hins vegar hefur verið ört vaxandi og umfang hennar í atvinnulífi Vestlendinga orðið umtalsvert. Í Sóknaráætlun Vesturlands 2013 voru þessar atvinnugreinar skilgreindar sem lykil atvinnugreinar. Á íbúaþingi Vestlendinga í maí 2015 var sú afstaða ítrekuð af fundarmönnum og leggja bæri áherslu á að efla þessar atvinnugreinar eins og kostur væri.
Áhersluverkefnið efling menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi hefur einmitt þann tilgang að efla greinarnar eins og kostur er í gegnum aukið framboð menntunar og þjónustu fræðsluaðila á Vesturlandi.
Verkefnislýsing
Verkefnið hefur víðtæka tengingu við Sóknaráætlun Vesturlands.
- Í fyrsta lagi þá tengist það markmiðum sem koma fram í samningi um sóknaráætlun varðandi það að styrkja mannauð á Vesturlandi.
- Í öðru lagi varð mikil umræða á Íbúaþingi Vesturlands 4. maí 2015 um að með meiri þekkingu mætti auka gæði í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.
- Í þriðja lagi tengist verkefnið leiðarljósi Sóknaráætlunar Vesturlands um gæði.
- Í fjórða lagi á verkefnið hljómgrunn í framtíðarsýn Vestlendinga varðandi mannauð, matvælaframleiðslu og ferðaþjónustu.
- Loks tengist það markmiðum Sóknaráætlunar Vesturlands um eflingu mannauðs, að styrkja matvælaframleiðslu og markmiðum um ferðaþjónustu.
Verkþættir
- Samantekt yfir framboð náms fyrir ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.
- Vinna að greiningu fræðsluþarfar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu.
- Vinna að námskeiðum fyrir ferðaþjónustuna og matvælaframleiðsluna.
- Kynning náms í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu haustið 2016.
Markmið verkefnis
Markmiðin með áhersluverkefninu eru bjóða þeim sem vinna við ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi upp á aukin tækifæri til menntunar. Með því að uppfylla þau markmið er leitast við að:
- hækka menntunarstig í ferðaþjónustu
- hækka menntunarstig í matvælaframleiðslu
- efla gæði í þjónustu og framleiðslu
Verkefnisstjórn
Tvær verkefnastjórnir voru tilnefndar af SSV og Háskólanum á Bifröst var falin stjórn verkefnisins. Verkefnastjórnir ákváðu á fyrsta fundi að starfa sem einn hópur og í honum sitja:
- Edda Arinbjarnar í Húsafelli, Ferðamálasamtök Vesturlands
- Guðrún Lárusdóttir, Landbúnaðarháskóli Íslands
- Inga Dóra Halldórsdóttir, Símenntun Vesturlands
- Kristján Guðmundsson, Markaðsstofa Vesturlands
- Magnús. S. Snorrason, Háskólinn á Bifröst
- Margrét Björk Björnsdóttir, SSV -atvinnuþróunarfélagið
- Ragnhildur Sigurðardóttir, Ferðamálasamtök Vesturlands
- Þorgrímur Einar Guðbjartsson, Fulltrúi úr atvinnulífinu
- Þórhildur Þorsteinsdóttir, Búnaðarsamtök Vesturlands
Verkefnisstjóri er Signý Óskarsdóttir, Háskólinn á Bifröst
Greining á fræðsluþörf í ferðaþjónustu
og matvælaframleiðslu á Vesturlandi
Við þarfagreininguna voru nýtt fyrirliggjandi gögn frá aðilum ferðaþjónustunnar og ákveðið var að styðjast við niðurstöður úr könnun Stjórnstöðvar ferðamála um mannafla- og fræðsluþörf í greininni, sem kom út í júní 2016. Einnig voru notuð óformleg samtöl við aðila í ferðaþjónustu og matvælaiðnaði.
Skipulögð var vinnustofa þann 30. apríl 2016 með aðilum úr matvælaframleiðslu á Vesturlandi og fræðsluaðilum. Boð um þátttöku í vinnustofunni var sent á um það bil 80 fyrirtæki og einstaklinga í matvælaframleiðslu á Vesturlandi, auk þess sem sömu aðilar fengu tækifæri til að koma hugmyndum og skoðunum á framfæri í gegnum netkönnun. Í vinnustofunni voru settar fram hugmyndir um forgangsröðun verkefna og hugmyndir að aukinni samvinnu og menntun í matvælaframleiðslu á Vesturlandi.
Þarfagreining verkefnisins sýndi fram á þörf fyrir stutt, hnitmiðuð og praktísk námskeið sem ekki krefjast þess að þátttakendur fari í lengri tíma frá sínum vinnustað. Blanda af stað- og fjarnámi var nefnd sem góður kostur.
Þörf er fyrir aukna fræðslu og þjálfun almennt í þjónustu, samskiptum, gestrisni og gæðum.
Starfsþjálfun á vinnustað er æskilegur kostur.
Einnig er þörf fyrir leiðsögunám og sérhæft leiðsögunám.
Styðja þarf við frumkvöðla í heimavinnslu og smærri framleiðslu og fram kom hugmynd um námskeiðaröð sem styður við þróun vöru frá hugmynd til afurðar.
Það skal tekið fram að strax í upphafi verkefnisins ákvað verkefnisstjórnin að leggja áherslu á þarfir smærri matvælaframleiðenda og heimaframleiðslu á Vesturlandi. Hins vegar stendur stærri framleiðslufyrirtækjum til boða að nýta sér þjónustu fræðsluaðila sem bjóða upp á sérsniðið nám eftir þörfum.
Námsframboð fræðsluaðila á Vesturlandi
Það framboð náms sem hér er kynnt er afurð þarfagreiningar og forgangsröðunar verkefnastjórna fyrir áhersluverkefni um eflingu menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu. Auk þeirra námskeiða sem hér eru upp talin er hægt að óska eftir ráðgjöf og sérsniðinni fræðslu fyrir ferðaþjónustu- og matvælafyrirtæki.
Ferðaþjónusta
- Starfsþjálfun í ferðaþjónustu
- Gæðastjórnun í ferðaþjónustu – sérstök áhersla á VAKANN
- Menningartengd ferðaþjónusta
- Viðburðastjórnun
- Mannauðsstjórnun
- Markaðssetning
- Stofnun og rekstur ferðaþjónustufyrirtækja
- Nýsköpun í ferðaþjónustu
- Fjármál og skattskil
- Þjónusta og gestrisni
- Framkoma og tjáning
- Enska í ferðaþjónustu
- Styrkumsóknir
Símenntunarmiðstöð Vesturlands
- Námskeið fyrir starfsmenn í eldhúsum
- Námskeið fyrir starfsmenn í hótelþrifum
- Leiðsögunám
Matvælaframleiðsla
Símenntunarmiðstöð Vesturlands
- Frá hugmynd til afurða – 40 klst. námskeiðaröð
- Vöruhönnun
- Meðferð matvæla
- Fullvinnsla lambakjöts námskeiðsvefur í vinnslu
Ráðgjöf og sérsniðin fræðsla
Sérsniðið nám og fræðsla er í boði fyrir ferðaþjónustu- og
matvælafyrirtæki sem og aðra starfsemi.
Hægt er að óska eftir heimsókn frá fræðsluaðilum sem gera fræðsluáætlun í takt við þarfir á hverjum stað.
Símenntun Háskólans á Bifröst
Símenntunarmiðstöð Vesturlands
Endurmenntun Lanbúnaðarháskóla Íslands
Fræðsluaðilar
Margir sinna fræðslu fyrir ferðaþjónustu og matvælaframleiðendur. Í áhersluverkefni um eflingu menntunar í ferðaþjónustu og matvælaframleiðslu á Vesturlandi hafa Háskólinn á Bifröst, Landbúnaðarháskóli Íslands og Símenntunarmiðtöðin á Vesturlandi lagt sérstaka áherslu á að koma til móts við þarfir í báðum greinum, sjá nánar undir námsframboð.
Á landsvísu eru margir aðilar sem sinna bæði formlegu og óformlegu námi í greinunum og má kynna sér það hér neðar. Athugið að ekki er um tæmandi lista að ræða.
Háskólinn á Bifröst
Háskóli Íslands
Háskólinn á Hólum
Landbúnaðarháskóli Íslands
Endurmenntun HÍ
Símenntun Háskólans á Akureyri
Menntaskólinn í Kópavogi
Fjarmenntaskólinn
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Menntaskólinn á Tröllaskaga
Keilir
Flugskóli Íslands
Símenntun Háskólans á Bifröst
Endurmenntun LbhÍ
Opni Háskólinn
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvar um allt land
Ferðamálaskóli Íslands
Iðan fræðslusetur
Landsbjörg
Umhverfisstofnun
Sýni – matvælaskólinn
Háskóli Íslands
Háskólinn á Hólum
Háskólinn á Akureyri
Landbúnaðarháskóli Íslands
Menntaskólinn í Kópavogi
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Fisktækniskólinn
Iðan fræðslusetur
Sýni – Matvælaskólinn
Símenntun Háskólans á Akureyri
Endurmenntun LbhÍ
Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og símenntunarmiðstöðvar um allt land
Fisktækniskólinn
Iðan Fræðslusetur í samstarfi við MK
Sýni – matvælaskólinn